Ofbeldið gegn þroskahömluðum í Bretlandi

Mæli eindregið með því að fólk horfi á þessi myndbönd! Ótrúlegt að fylgjast með þessu og að sjá foreldrana sjá þessa meðferð á börnunum sínum. 

 

Er þetta ekki bara blanda af Stanford fangelsistilrauninni og Milgram tilrauninni að eiga sér stað raunveruleikanum? Hér er fólk sem er ósjálfbjarga og treystir á aðra til að sjá um þau, en hvað geta þau gert í tilfelli sem þessu? Mjög lítið. Mörg þeirra hafa ekki þroska til að geta gert sér grein fyrir því að þau ættu aldrei að lenda í neinu sem líkist þessu, þetta verður bara daglegt brauð og hluti af norminu. Tilkynningar oft hunsaðar eða fólki ekki trúað.

Ég hef sjálf unnið á stað fyrir fatlaða, og stuttu eftir að ég byrjaði að vinna þar voru öryggismyndavélarnar sem voru áður til staðar teknar niður, ekki talið þörf fyrir þær eða eitthvað álíka. Mér fannst þetta alltaf mjög undarlegt, fannst að þetta væri einmitt staðurinn þar sem ÞYRFTI að hafa öryggismyndavélar. En fólki er alltaf bara treyst, ekki bara í þessu tilfelli í Bretlandi, heldur hér á Íslandi líka og eflaust í ótal öðrum löndum. Fatlaðir eru oft fórnarlömb eineltis, ofbeldis og misnotkunar, og af hverju? Því fólkinu sem vinnur við það að passa upp á öryggi þeirra er bara treyst, en það er oft einmitt það fólk sem beitir ofbeldinu. Auðvitað á þetta ekki bara við um fatlaða heldur líka börn, aldraða, fanga og aðrar aðstæður sem annar aðili hefur 100% vald yfir hinum. Hvenær ætlar kerfið að fara að byggja eftirlistáætlanir sínar á rannsóknum? Alvöru sálfræðirannsóknum? Því sálfræðingar komust að þeirri niðurstöðu fyrir 4-5 áratugum að við aðstæður sem þessar getur fólk hagað sér á ótrúlega grimman hátt, og þá erum við ekki bara að tala um einhverja siðblinda einstaklinga heldur bara meðal Jóninn úti á götu.

Það þarf að setja lög um öryggismyndavélar og eftirlit þegar það kemur að svona löguðu. Hafa öryggismyndavélar, hafa fagaðila reglulega taka tilviljunarúrtak af upptökum til að skoða. Útrýma möguleikanum á að svona lagað geti átt sér stað til lengdar, við höfum tæknina til þess og við ættum að nota myndavélarnar til að tryggja öryggi þeirra sem eru minnimáttar, ekki bara til að passa þessa helv... peningana í peningakössum og dýru vörurnar í verslunum, heldur til að passa upp á FÓLK! 

Það þarf margt að breytast þegar það kemur að svona málum. 

 

Júlíana

 


Dindill

Það er kominn nýr íbúi í íbúðina í Kópavogi, og það er hann 6-8 mánaða Dindill litli kisukall úr Kattholti. Ég rakst á Facebook síðuna hjá Kattholti um daginn og ég sá mynd af svo ótrúlega fallegum kisustrák að ég gat ekki hamið mig. Dró Evu með upp í Kattholt í dag og ég fór ekki tómhent til baka. Hér er mynd af litla sæta kisustráknum með fallegu bláu augun sínJoyful

 

 

Hann er svo rosalega líkur honum Brósa, sem ég átti þegar ég var lítil, það var kannski partur af því sem heillaði migSmile En fyrir utan það að vera líkur Brósa og að vera með þessi bláu augu þá er ýmislegt annað sérstakt við hann... hann er með augnsýkingu (eins og Brósi), löppin hans beyglast eitthvað smá í öfuga átt þegar hann labbar og já... svo vantar á hann skottið... þaðan kemur nafniðWink Hann hefur líklega verið pillubarn (sem sagt mamma hans verið á pillunni þegar hún gekk með hann) og þess vegna er hann svolítið spes, svolítill klunni, jafnvægið ekki alveg tip top og hausinn hans pínu lítið wobbly stundum. Hann er sem sagt svona týpan sem væri riding the short bus mætti segjaTounge

p190411_20_460001_1077920.jpg

Dindill búinn að koma sér vel fyrir í bælinu sem ég saumaði fyrir Jesús. 


Jesús og Dindill
 
Kúr
 
Hér er svo litli dindillinn hans Dindils Wink

 
 
Fínt að vera komin með eina kisu hérna í Engihjallann þar sem ég þurfti að skilja allar hinar eftir hjá mömmu, get víst ekki bara tekið þær og breytt þeim í inniketti í einhverri blokk sisvona þegar mér dettur í hug að flytja. En Dindill er þá Kópavogskisinn og mun vera inniköttur... enda held ég að ég myndi ekki treysta honum úti, dettandi um sjálfan sig og eitthvað.

Ég ætla svo núna að skella honum í kattabeislið og fara í göngutúr með hann og JesúsWink

 

Júlíana


Flutningar!

Þá er maður loksins að flytja að heiman! Búin að vera að safna að mér dóti fyrir íbúðina og maður er bara að vinna í því að koma sér fyrir. Ég, Eva, Elísa og Jesús erum nýjustu Kópavogsbúarnir!

Hvað er annars málið með Kópavog og grænar girðingar? Þær eru út um allt! Nei ég bara spyr... 

Myndir fara að detta inn á næstu vikum. Myndir af íbúðinni sem sagt... ekki girðingunum...

 

Júlíana Kópavogsbúi!Grin

 

Nýja heimilið í Kópavogi
Nýja heimilið í Kópavogi

 


Hvað er hægt að segja við: "Ég trúi..."?

Ég hef verið að spá í því undanfarið hvað sé hægt að segja við fólk sem byrjar setningar sínar á einhverju eins og "ég trúi", er hægt að rökræða gegn þeirri setningu? Þá er ég ekki endilega að tala um trúarbrögð sem slík heldur bara almennar skoðanir eða hjátrú eða hvað sem á að kalla þetta. Ég gæti til dæmis sagt: "Ég trúi að ég þurfi að slá þig vikulega, annars mun einhver í fjölskyldunni minni deyja á þessu ári. Mér var sagt það í draumi og ég trúi á skilaboð í draumum." Réttlætir það að ég myndi alltaf bara mæta heim til þín og slá þig vikulega?

Oft ef maður rökræðir við einhvern um einhver málefni, hvort sem það eru trúmál eða órökstuddar skoðanir, þá endar það oft með því að manneskjan segir: "Ég trúi að það sé svona." Og það er ekkert hægt að segja við því. Sama hversu óraunhæft það er, það er ekki hægt að svara því. Sögnin að trúa felur náttúrulega í sér það að maður treysti að eitthvað sé satt, hvort sem maður hefur góð rök fyrir því eða ekki, jafnvel þó öll skynsemi bendi í hina áttina (sem ég er auðvitað alls ekki að segja að sé alltaf).

Auðvitað getur þetta oft verið alveg meinlaust og mér finnst ekkert að því að fólk hafi sínar hjátrúr eða trúarbrögð í friði. Trúarbrögð eru ekki hægt að rökræða til dæmis, og ég held að maður eigi bara ekkert að gera það yfir höfuð. Ef fólk reynir það þá rökræðir það í hringi; "Af hverju trúirðu á Guð?" "Því Biblían segir að hann sé til." "Af hverju trúirðu því sem stendur í Biblíunni?" "Því hún er orð Guðs." Ég er trúlaus en hef ekkert á móti því að fólk hafi sína trú í friði svo framalega sem það er ekki að nota hana til að líta niður á annað fólk eða reyna að troða sinni trú upp á annað fólk. En það eru alltaf þeir sem eru í þeim pakkanum og koma þ.a.l. slæmu orði á sín trúarbrögð og fær fólk upp á móti sér. Hvort sem það eru öfgatrúar múslímar sem fremja hryðjuverk eða kristið fólk að viðra fordóma sína gegn t.d. samkynhneigðum. En ég er alveg komin út fyrir efnið, ætlaði ekki að tala um trúarbrögð sem slík hérna, mín skoðun er sú að það eigi ekki að rökræða þessi mál svo framalega sem það er ekki verið að skaða neinn. Það sem ég vildi sagt hafa er að oft er trú fólks skaðleg og hamlandi, og ég held að ég geti sagt að ég viti það, en ekki bara trúi því, og ætla því að rökstyðja það sem ég er að segja og koma með raunverulegt dæmi.

Ég fór að hugsa um þetta þegar ég horfði á viðtal við konuna sem langar að vera 1000 pund að þyngd, eða næstum hálft tonn, og verða feitasta kona í heimi. Fólk er að sjálfsögðu búið að reyna að útskýra fyrir henni að þetta sé stórhættulegt og hún muni líklega ekki lifa það af. Sem ætti nú að vera eitthvað sem hún ætti að spá í, þar sem hún á litla stelpu sem er fædd árið 2007, þ.e.a.s. nema að henni sé alveg sama um það að hún alist upp móðurlaus. Hún er ein af þessum sem ég myndi segja að væri að skaða sjálfa sig og aðra með því að nota setninguna "ég trúi..." til að réttlæta það sem hún er að gera. Hún heldur því fram að hún sé ekki að drepa sig með því að gera þetta, þar sem hún trúir því að allir séu bara með fyrirfram ákveðna dagsetningu sem viðkomandi mun deyja á, sama hvernig lífi viðkomandi lifir, við erum bara öll með okkar dagsetningu. Þetta segir hún og heldur því þ.a.l. fram að hún sé ekki að stofna lífi sínu í hættu á neinn hátt, því ef hún deyr, þá var það bara hennar tími, hvort sem hún hefði verið 500 kg eða 70 kg. Hvað er hægt að segja við því? "Það er ekki þannig, þú verður að hugsa vel um sjálfa þig og heilsuna ef þú vilt sjá dóttur þína verða fullorðna, þessi lífsstíll mun þróa með sér sjúkdóma sem munu draga þig til dauða allt of snemma." Nei það er ekki hægt að segja það! Því hún trúúúir ekki að það sé þannig, og þá skiptir ekki máli hvað við hana er sagt, þetta er hennar trú. 

Mér finnst ömurlegt að heyra um svona tilfelli, manneskjan hlýtur að trúa þessu í alvörunni fyrst hún er tilbúin að fórna lífi sínu svona og nánast tryggja það að dóttir hennar mun missa mömmu sína allt of snemma. Það sem ég hugsa þegar ég sé svona tilfelli er það hvort einhverjum öðrum finnst þetta "meika sens" og gefi bara skít í heilsuna. Einhver sem hefði kannski annars tekið sig á jafnvel? Maður veit aldrei. 

 

 Donna Simpson með manninum sínum

 
 
Eins og trú eða hjátrú getur verið hughreystandi og hvetjandi og þ.a.l. af hinum góða, þá finnst mér ömurlegt að sjá svona tilfelli þegar trú fólks mun vera það sem dregur það til dauða. 
 
 
Júlíana

 

 


2010

Ég hef ekki verið dugleg að blogga þetta árið, en ætla að henda inn nokkrum punktum um árið!Smile

*Stóð ekki við áramótaheitin sem ég gerði fyrir árið 2010... man ekki alveg hver þau voru... en ég man að ég stóð ekki við þauToungeWhistling

*Flutti í 2 mánuði í Svarthamrana

*Kynntist fólki sem ég veit að ég mun halda áfram að fíflast með næstu áratugina! Gaman hvað fólk getur komið á óvartWink

*Fékk hundinn Jesús sem fæddist 27. mars, algjör draumur í dós sá litli kall, svona megnið af tímanum allavegaWink

*Skráði mig í sálfræði og ensku í Háskóla Íslands, gat ekki beðið! 

*Skólinn var krefjandi og skemmtilegur og ég get ekki einu sinni valið hvort mér finnst skemmtilegra, enskan eða sálfræðin. Búin að fá fínar einkunnir í þessu öllu saman og hlakkar bara til að halda áfram á næstu önn. 

*Það fannst æxli í tungunni minni í haust, en það var góðkynja og ekkert til að hafa áhyggjur af. Það gerði það að verkum að ég kann betur að meta heilsuna mína núna í lok þessa árs heldur en ég gerði í byrjun þess. 

*Skráði mig loksins úr þjóðkirkjunni! 

*Eignaðist litla frænku í desemberGrin

*Bjó til ný áramótaheit sem ég ætla að standa við í þetta sinn!Blush

2010 er búið að vera alveg ágætt ár, ætla ekki að kvarta mikið. En ég er komin með stór plön fyrir árið 2011 og vonandi gengur það bara allt eftir!Grin 

 

 

 
Við Jesús Alejandro þökkum árið sem er að líða!
 
 
Júlíana

 

 

 

happy-new-year1

 

 


Er ég sú eina sem er ekki alveg að fatta Gay Pride?

Núna fyrir stuttu var Gay Pride eins og flestir vita, mega skrúðganga og allt það. Ég hef reyndar aldrei farið á þessa hátíð, reyndar einu sinni labbað í gegnum bæinn þegar þetta var í gangi, stoppaði smá að hlusta á tónleikana sem var æði, rakst líka á fólk í ótrúlegustu búningum, sumir fannst mér töff en aðra bara skildi ég ekki alveg. Gay Pride er náttúrulega haldið fyrir góðan málstað og allt það, sumt þarna finnst mér alveg æði, eins og þegar ættingjar ganga um í bolum sem á stendur "sonur minn er samkynhneigður" eða "systir mín er lesbía", mér finnst þetta við hæfi, en mikið af þessu skil ég ekki alveg.

Ég myndi halda að eitt af baráttu málunum fyrir réttindi samkynhneigðra væri að samkynhneigðir séu ekki eitthvað örðuvísi en venjulegt fólk. Margir sem eru á móti samkynhneigð halda að þetta séu bara einhverjir kynvillingar, fólk með eitthvað brenglaða hugsun, ættu ekki að fá að ala upp börn í slíkum soraheimi og öll sú þvæla. Ég hef alltaf sagt að ég skil ekki fólk sem hugsar þannig... en svo ef maður spáir í því að fólk sem kannski þekkir enga samkynhneigða og fá skoðun sína af samkynhneigð út frá bara einhverju sem þau sjá í sjónvarpinu... t.d. Gay Pride! Hver er þá þeirra ímynd af samkynhneigð? Menn í engu nema pínu litlum G-streng að striplast um, konur í spes leðurgöllum eins og þær séu annað hvort í mótorhjólagengi eða í einhverri undarlegri kynlífsfantasíu, menn með gervibrjóst hangandi utan á sér, rasslausar leðurbuxur, margir að reyna að vera í eins litlu og þeir mögulega geta. Svo er maður hissa að fáfrótt fólk haldi að það sé eitthvað að þessu fólki.

Mér finnst það svooo röng ímynd af samkynhneigð að breyta þessu í sirkus eins og er búið að gera, margir sem fara bara til að hlæja að fólki sem er að nánast bara að gera sig að fífli í einhverjum semí óviðeigandi búningum. Þeir sem hafa séð Hringjarann í Notre Dame muna kannski eftir hátíð fíflanna sem var þarna í fyrstu myndinni? Mér datt sú samlíking í hug þegar ég var eitthvað að spá í þessu, og mér fannst það ekki beint jákvætt. Mér finnst ekkert að því þegar fólk er að dressa sig upp í einhverja skemmtilega búninga og hafa gaman að þessu (fannst Jón Gnarr t.d. SNILLINGUR þetta árið!), en mér finnst líka að maður ætti að geta labbað þarna um með t.d. 6 ára litla frænda/frænku/systur/bróður/dóttur/son sinn án þess að lenda í einhverju vandræðalegu.

Kalli litli: Mamma, af hverju er maðurinn ekki í neinum fötum og bara í svona nærbuxum með bandi í rassinum?
Mamman: Af því hann er hommi elskan (segir hún meðan hún heldur fyrir augun á ömmu).
Niðurstaða: Kalli litli fær brenglaða ímynd af því hvað samkynhneigð er.

Finnst að það mætti alveg draga úr því hvað þetta er mikill sirkus/freak show og nektarsýning og byrja að einblína meira á það að þetta eigi að vera fjölskyldu hátíð fyrir alla!

Minnka þetta:

 

 

 

 

 

 

 

Meira svona: 

 

 

 

 

 

 

  parada_gay_rj_f_014_1017454.jpg
 
 
 
 

Þetta er allavega mín skoðun á þessu öllu saman. 

 

Júlíana

 


Hvað er búið að gera við kerfið!?

Af hverju var verið að fella niður samræmdu prófin? Af hverju er verið að hverfisskipta framhaldsskólunum? Var eitthvað að gamla kerfinu? Þegar ég var að taka samræmdu prófin í 10. bekk fannst mér bara ekkert að því, fannst þau bara gott viðmið og þau leyfðu mér líka að miða sjálfa mig við aðra nemendur í landinu en ekki bara sömu gömlu bekkjarfélagana. Tók líka eftir því að ákveðnir aðilar í bekknum, sem voru nú ekki beint vanir að læra fyrir próf, vinna heimanámið, hlusta í tíma og allt það, þeir nemendur voru allt í einu farnir að læra, mæta í prófundirbúningstíma sjálfviljugir, því það vissu allir að þessi próf skiptu máli! En núna geta svoleiðis nemendur sleppt því alveg, bara sofið í tíma í gegnum allan grunnskólann en samt komist inn í ágætan framhaldsskóla því þeir búa í "rétta" hverfinu!? Fyrst þegar ég heyrði að þetta væri orðið svona þá trúði ég ekki þeim sem var að tala um þetta, ég hélt að hann væri nú alveg örugglega að misskilja eitthvað við þetta eða ýkja, datt bara einfaldlega ekki í hug að svona fáránlegt kerfi gæti mögulega verið tekið upp á Íslandi árið 2010!

Það er bara fáránlegt að það eigi að skipta máli hvar á landinu þú býrð. Hvað ef þig langar að læra bifvélavirkjun og færir þ.a.l. í Borgarholtsskóla, en byggir í Kópavogi... áttu þá bara að breyta um stefnu í lífinu og skella þér bara í kokkinn frekar? Flytja? Ef þú býrð í hverfi sem er kannski ekki með mjög góðan framhaldsskóla í boði, en þú ert topp nemandi, átt þú þá bara ekki sömu réttindi og einhver sem býr í ,,betra" hverfi? Það er bara verið að búa til stéttaskiptingu!

Einkunnir í grunnskólum eru engan veginn sambærilegar á milli skóla, einn kennari býr kannski til mjög létt próf (og kannski meðvitað? Því hærri einkunnir sem bekkurinn hans/hennar fær, því betur lítur hann/hún út og skólinn líka), á meðan annar býr til erfiðara próf, svo það er bara heppni hvaða kennara þú færð. Ég hef lent á alveg slatta af lélegum kennurum, til dæmis var það einn í framhaldsskólanum sem var svo hræðilega ömurleg að eftir að nemendurnir voru búnir að taka lokaprófið þá breytti hún því hversu mörg prósent hver spurning gilti í prófinu. Ástæðan var greinilega sú að megnið af nemendunum var að falla, svo hún bara breytti þessu hér og þar svo að fleiri myndu ná og hún kæmi ekki illa út (ég tók eftir því að vægið á mjög léttum spurningum fór upp, og þeim erfiðari lækkaði). Ef þetta getur átt sér stað í framhaldsskóla, hvað þá grunnskóla. Þá myndi þetta vera lokaeinkunn hjá nemendum sem sækja um í framhaldsskóla... sem hefðu kannski ekkert átt að ná prófinu til að byrja með. 

Það á bara að henda þessu kerfi í ruslið og taka gamla góða kerfið upp aftur og fá samræmdu prófin til baka, og hætta svo að reyna að laga eitthvað sem er ekki bilað til að byrja með!

 

Júlíana

 


mbl.is Nían nægði ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðin!

Það standa yfir flutningar hjá mér þessa dagana, er að flytja í Vesturbæinn með tveim hressum villingum, þeim Evu Davíðsdóttur og Elísu Elínardóttur! Það verður án efa sjúklega gaman þegar við loksins flytum inn! Erum á fullu þessa dagana að mála og ÞRÍFA! Fólkið sem leigði þarna áður var greinilega þvílíkt sóðapakk! Fyrir utan það hvað þau eru LÖT! Þau voru ekki lítið lengi að drulla sér út úr íbúðinni, áttum að fá hana í byrjun maí, svo miðjan maí, svo byrjun júní, svo miðjan júní, svo 19. júní, svo 25. júní, svo ætluðu þau að fresta þessu meira en við tókum það ekki í mál og semí hentum þeim út. Við erum búnar að láta eitra þarna inni fyrir pödduógeði sem lifði góðu lífi þarna. Einn daginn þegar við vorum að mála fundum við eitthvað skordýr sem ég veit ekki alveg hvað ég á að kalla... en orðið sem lýsir því líklega best er kakkalakki!Sick Þetta flykki var um 2 cm á lengd og kannski tæpur 1 cm að breidd, Elísa setti hann í pappír og steig á hann... og ég heyrði the crunchy sound þó ég væri í alveg 3 metra fjarlægð! Ég veit ekki hvaða dýr þetta hefur verið... en mér líkaði allavega ekki við það! Næstu dagar munu líklega fara í að þrífa, mála, þrífa og þrífa aðeins meira... því ég neita að búa í 3 cm þykku lagi af ryki á sumum stöðum! Svo fer draslið yfir þegar allt er orðið glansandi og pöddulaust. Hlakka til!Grin

 

 

Júlíana Vesturbæingur!Grin


Er ekki í lagi?

Hverjum dettur í hug að skjóta níræða konu með rafbyssu? Var það virkilega eina leiðin til að yfirbuga þessa hraustu ofurkonu sem lá í sjúkrarúminu? 12 vopnaðir lögreglumenn á móti einni níræðri konu, úff best að yfirbuga hana strax áður en hún slasar þá! Allir þessi menn ættu ekki að fá að vera löggur, fólk á að geta treyst löggunni en ekki óttast hana að ástæðulausu. Væri til í að vita hvernig þetta mál endar.

 

Júlíana


mbl.is Stuðuðu níræða, rúmliggjandi ömmu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hveeeeer á afmæli?

ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG! ÉG!Grin

Og 2Pac... en aðallega ég!Grin


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband